Mánudagur, 24 janúar, 2005
Árrisul

Ég er að springa úr ánægju með sjálfa mig núna. Ég fór á fætur klukkan korter yfir sex í morgun, rétt eftir að Mörður fór í vinnuna.

Það er ekkert smá næs að klukkan sé orðin korter í tíu og ég sé nú þegar búin að einangra RNA úr tólf sýnum og þurrka eitt coomassie gel...

Ég var svo búin á því eftir gönguskíðin í gær að ég rotaðist fyrir klukkan ellefu og ég var handviss um að ég myndi fá harðsperrur dauðans í dag. En þær hafa ekki enn látið á sér kræla... Ég vona að þær komi ekki á morgun, ugh...

Posted by erna at 09:47 FH