Tjáh, ég er orðin alger músakvensjúkdómalæknir. Get orðið greint með annað augað lokað hvar í hormónahringnum þær eru, sko hvort þær séu "lóða" eða ekki. Ég var líka farin að fylgjast svo með músagreyinu í gær að ég var farin að greina fósturhreyfingar inn í henni.
Músin mín eignaðist sjö litla unga í gær, og þess vegna er ég á leiðinni upp á labb núna klukkan sex að morgni að tékka á þeim greyjunum.
Svo tekur bara við ljúft helgarfrí í DC, and all that jazz. I'm excited!!!