Mánudagur, 13 júní, 2005
Jedúddamía

Síðasta vika var svo brjáluð að ég er bara enn að jafna mig. Eeeendalaust mikil vinna og fullt af góðum niðurstöðum. Mér finnst þetta svo gaman, sérstaklega núna, þegar ég er í RNA og prótínvinnu samhliða. Þjálfun undanfarinna ára í labbvinnu er líka farin að skila sér, sem er mjög góð tilfinning =)

Helgin var líka alveg stórfín, slatti vinna náttúrulega, en líka smá djamm og svona. Við fórum í afmæli til Agnarinnar á föstudaginn, fórum á þennan líka fína kúbanska stað, þar sem við fengum gómsætan mat og gott vín og frábæran félagskap til að skola matnum niður með. Svo gaman!

Svo fórum við á tónleika með skandinavískum poppdívum á laugardaginn, en Melissa vinkona spilaði á þverflautu með einni hljómsveitinni.

Í gær slöppuðum við svo bara af. Fórum seint á fætur og slæptumst smá. Svo fór Mörður á Stjörnustríð með Brynhildi á meðan ég fór niður á bátabryggju og í ræktina.

Það var líka svo næs að geta loksins andað smá, slappað af og eldað góðan mat, en Brynhildur kíkti til okkar í mat. Klikkar ekki að fá hana í heimsókn!

Sumsé, brjáluð vika og góð helgi í góðum félagskap!

Posted by erna at 09:55 EH