Sunnudagur, 20 nóvember, 2005
Bleh, shcmleh

Jæja, ég vann minna um helgina en til stóð, en hvað um það. Ég hef haft í ýmsu að snúast félagslega, sem bætir algerlega upp vinnutapið. Á föstudaginn fór ég á fyrirlestur hjá Emily vinkonu og svo á gleðistund líffræðideildarinnar eftirá. Eftir það eldaði Helen svo fyrir okkur dýrðarinnar grænmetislasagne og við stúlkurnar sátum og skröfuðum frameftir kvöldi. Á laugardaginn hitti ég svo Röggu, fyrrum skólasystur mína úr lífefnafræðinni yfir bröns, sem dróst fram á seinnipartinn, við þurftum svo mikið að spjalla, enda ekki hittst í fjögur ár. Og eftir það var ekki annað að gera en að vinda sér niður í bæ í afmælið hennar Helen.

Dagurinn í dag er búinn að vera ansi rólegur. Ég er nú búin að skrifa aðeins, og fara í jóga, en ég er aftur orðin föst í jóga og sundi. Ég má ekki hlaupa eða hjóla í bili út af ökklanum á mér. En það lagast vonandi fljótlega. Jógað er líka svosem ágætt fyrir mann, en náttúrulega ekki nóg til að halda lungum og hjartanu hraustum. Ég sakna líka hugleiðsluástandsins sem ég kemst í við útihlaup. Það er ekkert betra en eins og átta kílómetra sprettur til að tæma hugann, láta heilavöðvann slaka á. Sem ekki væri vanþörf á í þessu stressi þessa síðustu og verstu daga. En, hey, Jeffrey er búinn að lofa því að laga mig. Ójá.

Posted by erna at 11:06 EH