Laugardagur, 26 nóvember, 2005
Laugardagsblogg

Jæja, þá er takkhátíðin afstaðin. (Orðið þakkargjörðarhátíð er of langt og óþjált og hljómar of formlega fyrir bandaríska hátíð. Af hverju köllum við þetta ekki bara takkhátíðina? Og það er of ljótt að skrifa þeinks gjifíng. Ég veit að ég hika venjulega ekki við að sletta á þessarri síðu, en öllu má nú ofgera!).

Við fórum norður til Pennsylvaníu með Josh og Mel og þeirra fjölskyldum. Það var stórfínt alveg. Utan þess að ég týndi gleraugunum mínum.

Á miðvikudaginn var fyrsti í úlpu. Sem passaði alveg ljómandi vel, því fyrsti snjórinn kom á fimmtudaginn, á takkhátíðinni semsagt, en það hefur nú ekkert snjóað síðan.

Annars hef ég ekki frá neinu merkilegu að segja held ég. Reyndar varð gleraugnahvarfið til þess að ég varð fyrir fyrstu góðu reynslunni af sjúkratryggingakerfinu hér í Ameríkunni. Tryggingin mín borgar semsagt fyrir helminginn af verðinu af nýju gleraugunum mínum.

En það er vont að skrifa vísindagrein gleraugnalaus. Og ég er núna að sóa dýrmætum mínútum fyrir framan tölvuskjáinn að þreyta augun mín, píri þau eins og kúreki að horfa yfir sléttuna á hjörð buffalóa nálgast. En ég er búin að vera svo dugleg í dag að ég á það skilið að blogga smá, og hana nú!

Posted by erna at 07:52 EH