Annað hvert orð í greininni minni er keratohyalin. Það minnir mig alltaf á íslenska orðið hýjalín. Alls ekki sami hluturinn, eða hvað?
Það á að vera hlýtt inni, kalt úti.... Ég sit hérna með húfu á hausnum í lopapeysu (oh... reyndar þarf ég sko ekkert að vera að frjósa úr kulda til að langa að fara í fínu lopapeysuna sem mamma prjónaði á mig) og pikka texta inn í Word. Skrifin eru komin á flug, en ég skrifa samt ekki lengur en nokkrar mínútur í einu áður en ég stranda. Þá leiði ég hugan að öðru (eins og að blogga), og þá dettur mér eitthvað nýtt í hug og þá svissa ég yfir í Word... Stuð! Ég er búin að spekúlera svo mikið að það jaðrar við að ég sé farin að oftúlka niðurstöðurnar mínar, en, hva! ef þetta er of mikið fyrir birtingu núna, þá geymi ég þetta bara fyrir doktorsritgerðina mína....
Mér líður svolítið eins og ég sé í jólaprófum þessa stundina, sit hér á laugardagskvöldi og hamast í greininni minni. Ég hef ekki verið í jólaprófum í sjö ár, þannig að mér finnst þetta pínu skrítið. Verst að það fylgir ekki almennilegt jólafrí í kjölfarið, en eitthvað verður nú minna stress í gangi eftir að greinin fer út.