Þriðjudagur, 13 desember, 2005
Úff

Ég var að enda við að senda út 30 blaðsíðna handrit til meðhöfundanna að greininni minni, auk 8 mynda og tveggja tafla. Tveggja og hálfs árs vinna harðsoðin niður í nokkur orð....
Og þá er að byrja á næsta verkefni. Ég á að halda klukkutíma fyrirlestur á föstudaginn fyrir fimmtíu manns. Frekar formlegur með öllum prófessorum deildarinnar og húllum hæ. Eins gott að koma sér að verki.

Posted by erna at 03:23 EH