Miðvikudagur, 28 desember, 2005
Söbbmissjón nálgast...

Jæja, nú fer stóra stundin að renna upp. Greinardruslan bara tilbúin og ég er að bíða eftir tölvupósti frá foringjanum um það að hún sé í lagi og við getum sent hana út. Ég er pínu stressuð, en við fórum öll af labbinu á barinn í hádeginu og fengum okkur bjór og böffalóvængi, þannig að það tekur aðeins af taugatrekkingnum. Ég ætla ekki einu sinni að hugsa um vísindi um helgina, verja deginum á morgun með Freyju og Finnboga og helst bara sofa sem mest í nokkra daga og ná úr mér veikindunum... Jessörí!

Posted by erna at 03:00 EH