Ég er orðin frekar langeyg eftir manninum mínum, sérstaklega núna þarsem það er pínu pása í vinnugeðveikisbiluninni. Hann hringdi í mig í hálfleik í dag. Þeir gerðu hvíld á laxveiðinni til þess að horfa á fótbolta. Ég held að þetta komist nálægt himnaríki hjá mínum, HM í fótbolta og fluguveiði í einu höggi.
Það er samt einn kostur við það að vera ein... Ég opnaði loksins krukkuna af kæstum hákarli sem ég keypti á leiðinni heim í fyrrasumar. Sumu hlífir maður manninum sínum fyrir. Andfýla af stærðargráðu hákarlsáts telst þar með. Já, maður verður að vera smá pollýanna, svona ein í kotinu....