Föstudagur, 8 desember, 2006
Fyrsti í húfu

Jæja, ætli það sé ekki opinberlega kominn vetur. Að minnsta kosti var 8 stiga frost í morgun og ég fór í vinnuna með húfu og vetlinga. Nokkrar umsviptingar í gangi því að fyrir réttri viku var tuttugu stiga hiti hér. (Á skalanum sem kenndur er við Celsíus).

Við lukum við jólagjafainnkaupin í þessari viku, nú bíðum við þess bara að þær berist í hús, en að vanda pöntum við gjafirnar af netinu.

Við hjónin erum svo samstíg að vanda. Það fór um mig hrollur af hamingju í gærkvöldi og ég sagði við Mörð að ég ætlaði að kaupa hrúgu af piparkökum og malti og appelsíni svo við gætum haft það verulega kósí við jólagjafa innpökkun í ár. Það verður sennilega bara kósí hjá mér, því í sömu andrá tilkynnti hann mér að það væri fínt að rumpa bara af innpökkun á hverri gjöf um leið og hún kæmi í hús. Ó bóy.

Posted by erna at 01:16 EH