Laugardagur, 9 desember, 2006
Jóla hvað...

Ég held að jólin eigi heima á Íslandi. Að minnsta kosti finnst mér sjaldan jólalegt hér í New York, nema kannski bara akkúrat á sjálfan aðfangadag...

Undantekningin er reyndar árið 2002, sælla minninga. Þá snjóaði á jóladag og snjórinn lá eins og flísteppi yfir borginni, þar sem flestir snjómokarar voru í jólafríi. Og sá dagur var svo rómó hjá okkur hjónunum, vafrandi um Greenwich village eftir misheppnaða söngleikjarferð. Snjórinn féll eins og mjúkur dúnn um allt og við enduðum inni á dæner sem far fullur af "flaming gay" vinum að opna jólagjafir hver frá öðrum. Andvarp... í þá gömlu góðu daga.

Fyndið að vera búin að búa hér nógu lengi til að vera með nostalgíu gagnvart fyrstu árunum.

Jólin í ár lofa reyndar mjög góðu. Finnbogi og Freyja mæta á svæðið með jólin í farteskinu beint frá Íslandi, jólagrágæsina og stuðið. Ég hlakka frekar mikið til. Er búin að lofa sjálfri mér að vinna ekki frá Þorláksmessu til jóladags, nema kannski bara að gefa frumum að éta. Og svo ætla ég að éta.

Brynhildur og Helen verða líka hjá okkur á aðfangadagskvöld og halda uppi stuðinu. Vantar bara Herdísi til að taka smá jólahjól.

Í kvöld stefnum við á jólapartí Icexpress á sænska veitingastaðnum Aquavit. Ætli þeir bjóði upp á lutefisk?

Posted by erna at 03:52 EH