Þekkið þið einhvern sem hefur fengið jólasmákökur sendar með DHL-International Express?
Ég hefði sko getað sparað mér hálfmánabaksturinn, af því að þegar ég kom í vinnuna beið mín þar kassi fullur af jólagjöfum og jólasmákökum sem mamma sendi mér. Og það var ekki svo mikið sem ein rispa á Sörunum.
Í augnablikinu er hins vegar ekki mikið eftir af þeim og labbfélagarnir og vinkonurnar eru búnar að komast að því hversu mikill afbragðsbakari hún móðir mín er!. Hálfmánarnir litu frekar vesældarlega út við hliðina á mömmubakstrinum.
Ég skrópaði í vinnunni í morgun og var heima að baka hálfmána.
Ég gerði tilraun til þess í gærkvöldi, en var búin að gleyma því að smjörið hér er fituminna en smjörið heima, þannig að hálfmánarnir héngu ekki saman. Ég skellti því í annað deig og setti inn í ísskáp. Svo þegar ég vaknaði í morgun át ég misheppnuðu hálfmánana með morgunkaffinu á meðan ég flatti út og fyllti þá nýju.
Hálfmánabakstur minnir mig alltaf á hann Ingólf afa minn heitinn. Ég minnist þess alltaf að hafa setið við hlið hans og lokað hálfmánum með gaffli, en amma bjó til deigið og flatti út en ég og afi mótuðum hringi, fylltum með sultu og lokuðum þeim.
Seinni umferðin hjá mér varð nú ekkert frábær, þeir rifnuðu svolítið og sultan lak út. Hefur einhver hugmynd um hvernig ég get bætt úr þessu?
Ég notaði smjör að hætti Nönnu Rögnvalds, í fyrstu uppskriftinni (Smákökudeig I í matreiðslubók Nönnu), en ákvað að prófa önnur hlutfölli í umferð númer tvö, bætti við auka eggi og notaði ívið meira hveiti. Þetta hjálpaði en var ekki fullkomið. Kannski maður ætti bara að nota smjörlíki, eða það sem kaninn kallar shortening...
Smá svekk að geta ekki notað uppskriftir að heiman af því að hráefnið er öðruvísi.