Jæja, það er víst bara brjálað veður á Íslandi og allar flugsamgöngur í klessu. Ætli það verði þá ekki einhver bið á jólagestunum. Ég veit að flugleiðavélinni í gærkvöld seinkaði um a.m.k. 6 tíma. Ég vona Freyju og Finnboga vegna að það gerist ekki aftur, en það er svona á mörkunum að ég búist við þeim í kvöld.
Flugleiðir segjast stefna á að koma öllum til áfangastaðar fyrir jól. Ég vona að það rætist!