Ég sit hér og tjasla saman fyrirlestri um verkefnið mitt. Ég á að halda svokallað Micro-seminar á föstudaginn. Á íslensku myndi það nú sennilega útleggjast sem föstudagsfyrirlestur örverufræðideildarinnar. Þetta er klukkutíma fyrirlestur og er frekar formlegur, þannig að ég er með pínu fiðring í maganum yfir því. Sérstaklega af því að það eru allir á labbinu mínu í fríi á föstudaginn, þannig að ég verð eina manneskjan úr hópnum þarna. Ekki einu sinni prófessorinn minn mætir á svæðið, en hún verður í jarðarför.
Mér telst til að þetta verði í þrítugasta og þriðja skiptið sem ég held tölu um verkefnið mitt, en þá tel ég með fimmtán labbfundi. Þannig að manni ætti svosem ekki að vefjast tunga um tönn. Það má líka segja að þetta sé hálfgerð generalprufa fyrir doktorsvörnina. Ég bæti ekki miklu af gögnum við úr þessu þannig að fyrirlesturinn verður mjög svipaður þegar ég ver, hann verður bara styttri, 45 mínútur í stað klukkutíma og með meira kynningarefni. Þetta er því fínt, að vera búin að semja doktorsfyrirlesturinn svona vel fyrirfram. Þá getur maður bara leikið sér í að fínpússa hann í PowerPoint þegar þar að kemur!