Laugardagur, 31 mars, 2007
Líkamsrækt og vinnureglur

Mörðurinn sló til í gær og mætti með mér í gymmið og keypti sér kort. Haldiði að það sé lúxus að geta bara farið að hitta bóndann í ræktinni! Ég hef ekki mætt jafnsjaldan í ræktina undanfarin tvö ár síðan ég var fimmtán ára, en þá var ég nú ekki mikið fyrir hreyfingu!

Ég þarf því spark í afturendann og það verður hvatning að Mörður komi með í gymmið. Ég er nefnilega búin að vinna svo mikið undanfarið að það verður of freistandi að fara heim og hitta kallinn frekar en að fara og æfa.

Ég er líka búin að setja mér vinnureglur sem gilda eiga fram yfir doktorsvörn:

1. Ekki vinna meira en 70 tíma á viku.
2. Taka mér einn 90% frídag á viku (þ.e. á sunnudögum má ég bara vinna í klukkutíma, en oftast þarf að gefa frumum að éta og svo framvegis og undirbúa fyrir mánudaginn).
3. Æfa 3x í viku til að halda heilsunni.
4. Vera mætt klukkan 7:30 í vinnuna mán-fös, en klukkan 10 ef ég vinn á laugardögum.

Svo er aftur annað mál hvort þetta sé raunhæft.....

Posted by erna at 02:39 EH