Ólafur Páll.. Við EIGUM ekki Sigur Rós. Og ekki Björku heldur. Og hættu að tala um sjálfan þig eða ég æli.
Mér finnst svo gaman að heyra í Sigur Rós, en Óli Palli talar út úr rassgatinu á sér. Ég vildi að hann hefði þá gáfu að leyfa viðmælandan að njóta sín án þess að tala bara um sjálfan sig allan tíman.
Jæja, það er aðeins farið að hægja um hér. Búin að pakka nær allri búslóðinni í kassa, nema eldhúsdóti og stofugræjum.
Þannig að nú hef ég enga afsökun lengur, ég verð að fara að undirbúa mig fyrir doktorsvörnina á fimmtudaginn. Ég verð bara að viðurkenna að ég veit ekkert hvernig ég á að undirbúa mig og þar að auki er ég bara ekkert stressuð fyrir þetta. Sem er eiginlega frekar slæmt, smá stress er allaf gott til þess að maður standi sig, en í augnablikinu nenni ég þessu bara ekki aaalveg. Ég nenni ekki að halda fyrirlesturinn, ég er komin með frekar mikið leið á honum...
Ætli það sé ekki merki um að ég sé tilbúin?