Miðvikudagur, 26 september, 2007
Hann er á leiðinni!

Oh.. Mörður kemur í kvöld! Ég hef ekki séð hann í fjórar vikur. Það verður léttir fyrir hann að hafa mig ekki hringjandi í sig fimm sinnum á dag.....

Posted by erna at 03:13 EH
Doktorsvörn á morgun!

Ég er búin að æfa fyrirlesturinn minn tvisvar í morgun. Hann er enn frekar "herky-jerky" eins og leiðbeinandi minn myndi segja. Ótrúlegt. Þetta er ekki nema rúmlega þrítugasta skipti sem ég held tölu um þetta verkefni.

Annars hlakka ég bara til morgundagsins. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að tala í tvo klukkutíma við fimm framúrskarandi vísindamenn um sitt eigið verkefni!

Posted by erna at 12:18 EH