.... ég er farin að drekka te á hverjum degi. Það er bara eitthvað svo gott að fá sér heitan drykk seinnipartinn svona um miðjan "vetur" og kaffið hér sökkar. Annars er þetta í fyrsta skipti ansi lengi sem ég upplifi ekki vetur. Það kvarta náttúrulega allir yfir kulda, en ég hef ekki fundið fyrir honum. Ég hef til dæmis ekki enn sett upp húfu og ég geng venjulega ekki í vesti, ég hjóla í vinnuna á dúnvestinu utan yfir rúllukragapeysu.
En ég sakna sólarinnar. Sakna hennar sárt.