Ég var að fá fyrstu tilvitnunina í greinina mína. Af engri annari en Fionu Watt, stofnfrumu og erfðafræðingi sem ég ber ómælda virðingu fyrir. Hún var að birta yfirlitsgrein í Nature Reviews Cancer um proto-oncogenið cMyc og virkni þess í húð. En Blimpið mitt bælir Myc í húð og B-frumum meðal annars....
Ég er búin að vera hálflasin í allan dag (og mestalla vikuna reyndar), en í augnablik hvarf allur slappleiki eins og dögg fyrir sólu.