Miðvikudagur, 27 febrúar, 2008
Jarðskjálfti

Ég var uppi í rúmi að lesa í mestu makindum í nótt þegar allt fór að skjálfa. Í fimm sekúndur. Það reið yfir jarðskjálfti, 5.3 á skalanum sem kenndur er við Richter. Ég varð aðallega steinhissa, en fannst þetta líka pínu sport, fór fram í stofu og kveikti á sjónvarpinu, en þar var ekkert um málið svo ég fór bara að sofa.

Nú í morgun er náttúrulega ekki talað um annað í fjölmiðlum. Það var eiginlega pínu fyndið að sjá fréttamanninn frá Lincolnshire sem átti að fylgjast með "the cleanup operation". Hann stóð hálfskömmustulegur við hliðina á nokkrum kílóum af muldum múrsteini á götunni, en múrsteinnin sá ku hafa fallið úr skorsteini.

Svo höfðu fréttamenn BBC News á orði að það hefði verið áberandi í tölvupóstum áhorfenda hvað það hefðu verið margir eiginmenn á stofusófanum í nótt....

Posted by erna at 09:51 FH